Vafraðu um


Gamli

Nafn:

Gummi Már

Farsími:

8683330

MSN netfang:

joeytribbiani22@hotmail.com

Afmælisdagur:

19. desember

Heimilisfang:

Djúpivogur/Reykjavík

Staðsetning:

Reykjavík/Djúpivogur

Um:

Ég er 25 ára Congóbúi og er á sjó á Önnu GK-540

Tenglar

Titanic - Hnoð

Nýlegar rannsóknir á flaki Titanic ásamt hnoðum sem tekin hafa verið úr flakinu á löngum tíma og á mismunandi stöðum.. ásamt nýlega fundnum gögnum hjá Harland & Wolff skipasmíðastöðinni í Belfast kom það í ljós að mjög mörg, ef ekki flest hnoðin sem notuð voru í Olympic og Titanic voru gölluð. Þegar ákveðið var að smíða Olympic og Titanic þurfti White Star Skipafélagið að velja hnoðin sem héldu skipunum saman..  Gæði hnoðanna skiptust í 3 flokka, Lá Gæði - Miðlungs Gæði - Há Gæði. White Star kaus að velja miðlungs hnoðin því þau voru töluvert ódýrari en þau í bestu gæðum. Þetta staðfesta nýlega fundin skjöl sem hafa fundist, einnig staðfestir dagbók Thomas Andrews þetta.. en hann var hönnuður skipanna. Komið hefur í ljós við prófanir að hnoðin í Titanic hafi orðið óvenju stökk í köldum sjó.. og rannsóknir á flakinu staðfesta það að þegar Titanic var að sökkva var kominn svo ótrúlegur þungi fremst í skipið að sum hnoðin þoldu ekki álagið.. hausinn sprakk af þeim með þeim afleiðingum að op kom á milli stálplatnanna í skrokknum.. sem auðvitað orsakaði það að skipið sökk ennþá hraðar.



Vísaindamenn prufa hnoð eins og voru notuð í Titanic.. kom í ljós að við framleiðslu á þeim hafi myndast gjall inn í þeim, sem veikti þau töluvert.



Kom í ljós þegar hnoðin voru sett undir álíka mikla pressu og þegar Titanic sigldi á ísjakann að hnoðin voru með um 60 % af þeim styrk sem hnoð af þessari gerð áttu að hafa...  og hausinn einfaldlega brotnaði af þeim.

Kom einnig í ljós í skjölunum sem fundust hjá Harland & Wolff að stálhnoð voru aðeins notuð í miðjum skrokknum, en veikari járn hnoð notuð í stefnið og skutinn.. en þar sem skrokkurinn var ekki beinn og sléttur var ekki hægt að nota hnoðvélina.. þannig að sett voru járn hnoð í stefnið og skutinn svo auðveldara væri að berja þau í með hömrum..  Átti sú ákvörðun að nota járnhnoð í stefnið að enda með harmleik sem flestir þekkja.. en vísindamenn telja að ef notuð hefðu verið stálhnoð í stefnið að þá hefði Titanic sennilega haldist á floti nógu lengi þangað til hjálp barst. Harland & Wolff ávalt neituðu þessu en nýlega fundin skjöl og prófanir sanna annað. 

Það er svosem ekki gott að segja hvort Titanic hefði lifað af áreksturinn við ísjakann þó að hágæða hnoð hefðu verið notuð við smíðina. Skip sökkva enn þann dag í dag við það að rekast á ísjaka og fæst þeirra sigla á jakana af miklu afli og Titanic gerði. 
Olympic var smíðað með sömu hnoðum og lenti nú oft í óhöppum, var mjög oft að sigla á hluti... t.d. er Olympic eina farþegaskipið í sögunni sem hefur siglt niður og sökkt þýskum kafbát.


Framhald síðar.


© Guðmundur Már Karlsson, 2012




Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 264169
Samtals gestir: 74819
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:12:26